fbpx Tryp by Wyndham Dubai / Sheraton Abu Dhabi | Vita

Tryp by Wyndham Dubai / Sheraton Abu Dhabi
4 stars

4 nætur í Dubai á hótel  TRYP by Wyndham, fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett á góðum stað í Barsha Heights og álægt áhugaverðum stöðum eins og Palm Jumeirah og Burj Khalifa. Einnig aðeins örfáum skrefum frá neðanjarðarlestarstöðinni og stutt frá Mall of the Emirates.

Hrífandi útsýni, djarfar innréttingar og einstök þægindi setja m.a. glæsilegan svip á þau 650 herbergi sem eru á þessu fallega alþjóðlega hóteli. Öll eru herbergin með sjónvarpi, síma, minibar, öryggishólfi, te- eða kaffivél og hárþurrku svo eitthvað sé nefnt.Góð aðstaða er í boði fyrir hótelgesti svo ekki þarf að hafa áhyggjur af því að láta sér leiðast á meðan dvöl stendur, en þarna er sem dæmi útisundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu, fullbúin líkamsræktarstöð, töff veitingastaðir, barir, lifandi tónlist og setustofur.

Ókeypis aksturs-þjónusta er í boði á ströndina og í næstu verslunarmiðstöðvar. 

Heimasíða hótelsins

 

Sheraton Abu Dhabi Hotel & Resort er staðsett á hinni frægu ,,strandgötu" í hjarta borgarinnar og eru helstu verslunarhverfin í göngufæri.  

Þetta 4 stjörnu hótel hefur 272 herbergi og er tilvalið fyrir öll tilefni. Hægt að slaka á við einkaströndina sem tilheyrir hótelinu, við sandlónið, eða við sundlaugarnar. Heimsklassa veitingarstaðir, barir, líkamsrækt og heilsulind eru á hótelinu. 
Herbergin eru vel búin nútímaþægindum eins og sjónvarpi, síma, öryggishólfi, litlum ísskáp, te eða kaffivél og hárþurrku.  Þráðlaust internet er á staðnum og boðið er upp á herbergisþjónustu. Skemmtilegur kostur en hótelið er frábærlega staðsett í Abu Dhabi. Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 5 dirhams á mann, á nótt, á hótel Sheraton Abu Dhabi.

Heimasíða hótelsins

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur til Dubai
  • Flugvöllur: 2,5 akstur frá Abu Dhabi

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun