Tryp by Wyndham Dubai / Tryp by Wyndham Abu Dhabi

4 nætur í Dubai á hótel TRYP by Wyndham, fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett á góðum stað í Barsha Heights og álægt áhugaverðum stöðum eins og Palm Jumeirah og Burj Khalifa. Einnig aðeins örfáum skrefum frá neðanjarðarlestarstöðinni og stutt frá Mall of the Emirates.
Hrífandi útsýni, djarfar innréttingar og einstök þægindi setja m.a. glæsilegan svip á þau 650 herbergi sem eru á þessu fallega alþjóðlega hóteli. Öll eru herbergin með sjónvarpi, síma, minibar, öryggishólfi, te- eða kaffivél og hárþurrku svo eitthvað sé nefnt.Góð aðstaða er í boði fyrir hótelgesti svo ekki þarf að hafa áhyggjur af því að láta sér leiðast á meðan dvöl stendur, en þarna er sem dæmi útisundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu, fullbúin líkamsræktarstöð, töff veitingastaðir, barir, lifandi tónlist og setustofur.
Ókeypis aksturs-þjónusta er í boði á ströndina og í næstu verslunarmiðstöðvar.
5 nætur í Abu Dhabi á hótel Tryp by Wyndham, fjögurra stjörnu hótel með frábærri staðsetningu í hjarta höfuðborgarinnar og í göngufæri við helstu verslunarmiðstöðvar, skemmtilega garða og óspillta strönd.
Hótelið býður m.a. upp á stórfenglegt borgar- og sjávarútsýni, kaffihús, tvo veitingastaði þar sem hægt er að gæða sér á bæði þjóðlegum og alþjóðlegum réttum. Útisundlaug er uppi á þaki hótelsins ásamt lítilli sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar. Móttaka er opin allan sólarhringinn, herbergisþjónusta er í boði fyrir hótelgesti og hægt að fá ýmsar snyrtimeðferðir í heilsulind hótelsins, en þar er einnig líkamsræktaraðstaða. Herbergin eru samtals 146, öll eru þau smekklega innréttuð og bjóða uppi á þráðlaust internet, sjónvarp, síma, öryggishólf, minibar og hárþurrku, svo að dæmi séu tekin.
Á Tryp hotel by Wyndham Abu Dhabi er hægt að lofa eftirminnilegri og hressandi dvöl þar sem reynslumikið gestrisið starfsfólk mun sjá um að gera ferðina ógleymanlega.
Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 5-6 dirhams á mann á nótt.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 1,5 klst. akstur til Dubai
- Flugvöllur: 2,5 akstur frá Abu Dhabi
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Vifta
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður