fbpx Tryp By Wyndham Dubai | Vita

Tryp By Wyndham Dubai
4 stars

Vefsíða hótels

TRYP by Wyndham Dubai er fjögurra stjörnu hótel staðsett á góðum stað í Barsha Heights og er nálægt áhugaverðum stöðum eins og Palm Jumeirah og Burj Khalifa. Einnig aðeins örfáum skrefum frá neðanjarðarlestarstöðinni og stutt frá Mall of the Emirates.

Hrífandi útsýni, djarfar innréttingar og einstök þægindi setja m.a. glæsilegan svip á þau 650 herbergi sem eru á þessu fallega alþjóðlega hóteli. Öll eru herbergin með sjónvarpi, síma, minibar, öryggishólfi, te- eða kaffivél og hárþurrku svo eitthvað sé nefnt.

Góð aðstaða er í boði fyrir hótelgesti svo ekki þarf að hafa áhyggjur af því að láta sér leiðast á meðan dvöl stendur, en þarna er sem dæmi útisundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu, fullbúin líkamsræktarstöð, töff veitingastaðir, barir, lifandi tónlist og setustofur. Ókeypis aksturs-þjónusta er í boði á ströndina og í næstu verslunarmiðstöðvar. 

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt á hótel TRYP by Wyndham í Dubai. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur
  • Strönd: 12,2 km.
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun