V Hotel Curio Collection Dubai / Hilton Ras al Khaimah Beach

4 nætur í Dubai á V hotel Curio Collection sem er með fallegt útsýni yfir Dubai Water Canal og endurspeglar hönnunin anda borgarinnar.
Það er vel staðsett og átta kílómetrum frá miðbænum. Burj Khalifa og Dubai Mall eru í 10 mínútna fjarlægð og það eru strendur innan 10 km. Hótelið býður upp á 5 stjörnu lúxus og er með 356 herbergi og aðstaðan öll hin besta, eins og útisundlaug, barnasundlaug, líkamsræktarstöð, tveir veitingastaðir, tveir barir og tveggja hæða glæsilegur næturklúbbur með útsýni yfir borgina.
Herbergin eru útbúin nútímaþægindum og eru öll með sjónvarpi, síma, loftkælingu, te- og kaffiaðstöðu, öryggishólfi, hárþurrku og minibar svo eitthvað sé nefnt . Hótelgestir fá einnig baðslopp, inniskó og baðstrandarhandklæði á meðan dvöl stendur.
Þetta er hótel sem kemur á óvart og gleður með einstaka, áhugaverða og sjaldgæfa upplifun
Hilton Ras al Khaimah Resort er fallega innréttað lúxus hótel sem er frábærlega staðsett við sjávarsíðuna með geggjuðu útsýni yfir Persaflóan.
Þetta fimm stjörnu hótel hefur margt upp á að bjóða, þ.á.m. 7 sundlaugar, 1,5km einkaströnd og heimsklassa veitingastaði s.s. ítalskan, líbanskan og brasilískan ásamt nokrum börum.
Samtals eru 475 rúmgóð herbergi á hótelinu. Góð aðstaða er fyrir hina ýmsu afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri, þar á meðal er fullbúin líkmasræktaraðstaða- og vellíðunarklúbbur ásamt heilsulind þar sem hægt er að panta í hinar ýmsu meðferðir. Einnig er mikil afþreying fyrir börn s.s. krakkaklúbbur, leikvöllur og sérstök barnasundlaug, svo engum ætti að láta sér leiðast. Tvær stórar verslunarmiðstöðvar eru í 15-20 mín akstursfjarlægð frá hótelinu, Rak Mall og Manar Mall, þar sem hægt er að finna bæði veitingastaði og verslanir með allt sem hugurinn girnist.
Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt, á hótelum í Ras Al Khaimah.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 1,5 klst. akstur til Dubai
- Flugvöllur: 30 mín. akstur frá Ras Al Khaimah
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Morgunverður