fbpx V Hotel Dubai Curio Collection | Vita

V Hotel Dubai Curio Collection
5 stars

Vefsíða hótels

Hótelið er með flott útsýni yfir Dubai Water Canal og er hannað til að endurspegla anda borgarinnar.

Það er vel staðsett og átta kílómetrum frá miðbænum. Burj Khalifa og Dubai Mall eru í 10 mínútna fjarlægð og það eru strendur innan 10 km.

Hótelið býður upp á 5 stjörnu lúxus og er með 356 herbergi og aðstaðan öll hin besta, eins og útisundlaug, barnasundlaug, líkamsræktarstöð, tveir veitingarstaðir, tveir barir og tveggja hæða glæsilegur  næturklúbbur með útsýni yfir borgina.

Herbergin eru útbúin nútímaþægindum og eru öll með sjónvarpi, síma, loftkælingu, te- og kaffiaðstöðu, öryggishólfi, hárþurrku og minibar svo eitthvað sé nefnt . Hótelgestir fá einnig baðslopp, inniskó og baðstrandarhandklæði á meðan dvöl stendur. 

Þetta er hótel sem kemur á óvart og gleður með einstaka, áhugaverða og sjaldgæfa upplifun

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt á V hotel Curio Collection. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: 10 mínútna akstursfjarlægð
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstursfjarlægð
  • Strönd: 10 km.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun