Vilamoura Golf Apartments
Vefsíða hótels

Hotel Apartamento do Golfe Vilamoura er íbúðahótel á góðum stað í Vilamoura. Hótelið er staðsett í miðri paradís golfarans þar sem það er umkringt fallegri náttúru og skemmtilegum golfvelli.
Hótelið samanstendur af 59 íbúðum sem skiptast í stúdíóíbúðir og íbúðir eru með einu svefnherbergi. Íbúðirnar eru bjartar, snyrtilegar og rúmgóðar. Hönnun þeirra erí hefðbundnum portúgölskum stíl. Veggir eru hvítmálaðir og ljósar flísar eru á gólfum. Húsgögn eru viðarlituð sem kemur hlýleika inn í rýmið. Allar íbúðir hafa setustofu og lítið eldhús með öllu því helsta sem þarf til léttrar matargerðar, örbylgjuofni og ísskáp. Í íbúðunum eru svalir og allar íbúðir eru með loftkælingu, sjónvarpi með gervihnattastöðvum, síma, útvarpi og öryggishólfi. Baðherbergin eru flísalögð í hólf og gólf. Þar eru sturta og baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Á hótelinu eru góður veitingastaður, bar og snarlbar sem býður upp á létta rétti til að njóta yfir daginn. Í hótelgarðinum er góð sundlaug og aðstaða til sólbaðsiðkunar, sólstólar og sólhlífar. Þar er einnig tennisvöllur og inni á hótelinu er svo leikjaherbergi, meðal annars með billjarðborði og fótboltaspili. Í gestamóttöku hótelsins er hægt að leigja bíla ef ætlunin er að keyra um svæðið og skoða sig um, einnig er hægt að leigja hjól. Starfsfólk hótelsins er vingjarnlegt og hjálpar við að bóka rástíma í golfinu, komast á milli staða og skipuleggja fríið. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenni við hótelið, til dæmis er gaman að fá sér göngu og kíkja á mannlífið á smábátahöfninni.
Í heildina er um að ræða góða íbúðagistingu sem er einungis í nokkurra mínútna fjarlægð frá golfinu.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 25 mín
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Íbúðir
- Nettenging: Gegn gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Íbúðir
Fæði
- Hálft fæði
- Morgunverður
- Án fæðis