Villa Gadea Beach, Altea
Vefsíða hótels

Nýtt hótel á vegum VITA í hinum rómaða bæ Althea um 5 km frá Albir. Hótelið var opnað 2005 og er allt hið glæsilegasta með flottum sundlaugagarði með útsýni yfir Miðjarðarhafið, fjölbreyttum veitingastöðum og spa. Ekki eru nema 3 km frá hótelinu í miðbæ Althea.
Í hótelgarðinum eru þrjár sundlaugar (ein er upphituð á vorin og haustin) umluktar fallegum gróðri og góðri sólbaðsaðsöðu með frábæru útsýni. Hótelið leggur mikin metnað í heilsulindina og má velja um ýmsar meðferðir og dekur (gegn auka gjaldi) en einnig er líkamsrækt sem gestir hafa frían aðgang að. Barnaklúbbur og skemmtidagskrá eru á sumrin, en einnig er boðið upp á lifandi tónlist um hverja helgi.
Herbergin eru ýmist með eða án garðsýn, með loftkælingu, flatskjá, síma, minibar, öryggishólfi, baðkari og sturtu, internet tengingu, hárþurku, inniskóm og sloppum.
Á SH Villa Gadea er einungis boðið upp á gistingu með "öllu inniföldu", en mikið er lagt upp úr fjölbreyttum veitingastöðum, en þeir eru 4 talsins auk Lobby bar og Oasis bar, en hann er staðsettur í sundlauginni sjálfri, kjörin til að fá sér drykk eða kokteil.
Bærinn Altea er heillandi lítill smábær sem vert er að skoða en einungis er um 3 km í "gamla" bæinn þar sem finna má góða veitingastaði, bari og skemmtilegar búðir með handverki heimamanna.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 50 mínútur
- Miðbær: 3 km
- Strönd: Við strönd
- Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
Aðstaða
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Nettenging: þráðlaus nettenging frí á sameiginlegum svæðum og á herbergjum
Vistarverur
- Hárþurrka
- Verönd/svalir
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp