Visconti Palace
Vefsíða hótels

Í hótelinu eru 240 einkar stílhreinar og fallega innréttaðar vistarverur. Herbergin eru búin flestum nútímaþægindum, vel hljóðeinangruð með loftkælingu og miðstöðvarhitun, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum og þráðlausum netaðgangi. Á baðherbergjum er sturta og hárþurrka og baðvörur fylgja.
Í veitingasal er boðið upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð. Á veröndinni á þaki hótelsins er snarlbar og þar er einstaklega ljúft að hvíla lúin bein eftir verslunarleiðangur eða skoðunarferð og njóta sólarlagsins yfir góðum drykk og léttum veitingum.
Móttakan er opin allan sólarhringinn og er starfsfólkið þekkt fyrir þjónustulipurð. Þar er töskugeymsla, boðið er upp á þurrhreinsun, þvott, strauningu, aðstoð við miðakaup og fleira. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og í móttökunni er hægt að fá kort með hlaupaleiðum um nágrennið fyrir þá sem vilja spretta úr spori.
Visconti Palace hótelið frábærlega staðsett við bakka Tíberárinnar í hjarta Rómar. Helstu kennileiti, listasöfn og verslunargötur eru í léttu göngufæri. Stutt er í Péturskirkjuna, Panþeon, Spænsku tröppurnar, Sant‘Angelo-kastalann og jarðlestir og strætisvagnar sjá um að flytja ferðalanga á þá staði sem lengra er í.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 32 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Í nágrenninu
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Nettenging
Vistarverur
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf
Fæði
- Morgunverður