Westin Dubai Mina Seyahi Beach Resort
Vefsíða hótels

Fallegt 5 stjörnu hótel staðsett á Jumeirah-ströndinni og fullkomið fyrir alla fjölskylduna.
Spennandi úrval afþreyingar og nálægð við athyglisverðustu aðdráttaröfl Dubaí. Með glæsilegri hönnun og útsýni yfir Palm-eyju tekur fimm stjörnu strandhótelið innilega á móti þér.
Vel útbúið hótel með 292 rúmgóðum hótelherbergjum og svítum og státar af einstökum börum og veitingastöðum, flottri veislu- og viðburðaaðstöðu, glæsilegri heilsulind og líkamsrækt. Hótelið býður upp á fimm útisundlaugar, allar staðsettar við ströndina og því með fallegu sjávarútsýni, tvær eru skyggðar barnalaugar. Sólbekkir og handklæði eru til staðar og sundlaugarbar er fyrir léttar máltíðir eða svala drykki. Gestir geta notið ánægjunnar af hreinni slökun á Jumeirah ströndinni, við hótelið, sem er ein af lengstu einkaströndum í Dubai, um 500 metra löng.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 1,5 klst akstur
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnaleiksvæði
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Verönd/svalir
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður