fbpx Wyndham New Orleans French Quarter | Vita

Wyndham New Orleans French Quarter
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel á frábærum stað í hjarta Franska hverfisins. Litríkt mannlíf, veitingastaðir djassklúbbar og verslanir allt um kring.

Í hótelinu eru 374 nýuppgerð rúmgóð herbergi sem rúma tvo til fjóra einstaklinga. Innréttingar eru klassískar og hlýlegar. Teppi er á gólfum og myrkvunargardínur fyrir gluggum. Herbergin eru búin öllum sjálfsögðum þægindum eins og síma, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum og myndaleigu, kaffivél, öryggishólfi, straujárni og strauborði. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur. Þráðlaus nettenging er í öllum vistarverum gestum að kostnaðarlausu.

Veitingastaðurinn og sportbarinn Deuce McAllister's Ole Saint Kitchen & Tap er í hótelinu. Þar er suðræn kreólamatargerð af bestu gerð í hávegum höfð og andrúmsloftið afslappað. Héðan þarf enginn að fara þyrstur því að á barnum eru í boði tugir tegunda af bjór á krana auk úrvals af léttvíni og kokteilum.

Til að endurnæra líkama og sál á milli bæjarferða er upplagt að leyfa þreytunni að líða úr sér í innisundlauginni sem er upphituð eða taka vel á því í líkamsræktaraðstöðunni.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er töskugeymsla og hraðbanki. Boðið er upp á þurrhreinsun samdægurs virka daga og gestir geta notað myntþvottahúsið á hótelinu að vild.

Wyndham hótelið er frábærlega staðsett í hjarta Franska hverfisins sem er elsti hluti New Orleans borgar. Bourbon Street sem er þekkt fyrir fjörugt næturlíf, djassklúbba og bari er rétt handan við hornið og verslanir og veitingastaðir eru allt um kring. Helstu kennileiti, kirkjur og sögustaðir hverfisins eru í léttu göngufæri og stutt er í næsta sporvagn en skemmtilegt er að skoða borgina úr einum slíkum. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: í næsta nágrenni
  • Flugvöllur: 30 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Herbergi: með morgunverði

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun