Ambasciatori Palace
Vefsíða hótels

Ambasciatori Palace er fimm stjörnu hótel, til húsa í sögufrægri byggingu við Via Vittorio Veneto, eina frægustu götu Rómar, í hjarta borgarinnar eilífu og hentar hvort tveggja fólki í viðskiptaerindum eða skemmtiferð.
Í hótelinu eru 151 rúmgóð og glæsileg herbergi, frá eins manns upp í svítur. Herbergin eru að sjálfsögðu búin öllum þægindum eins og loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, ókeypis netaðgangi, síma, smábar og öryggishólfi. Öllum herbergjum fylgir ókeypis aðgangur að líkamsræktarsal. Baðherbergi eru lögð marmara.
Via Veneto er vettvangur hinnar frægu kvikmyndar um „ljúfa lífið“ í Róm, „La Dolce Vita“. Ekki er langt að fara á helstu verslunargötur Rómaborgar, Via Condotti og Via del Corso, og margt það helsta sem dregur ferðamenn til borgarinnar er heldur ekki langt undan svo sem Villa Borghese, Colosseum, Spænsku tröppurnar, Panþeon, Fontana di Trevi og Piazza del Popolo.
Hótelið hýsir eitt af bestu veitingahúsum Rómaborgar, La Terrazza, sem opnast út á verönd og því tilvalið að borða úti undir beru lofti þegar hlýtt er í veðri. Á Embassy-barnum er upplagt slaka á yfir drykk eftir annasaman dag.
Í hótelinu eru 10 vel búnir ráðstefnusalir sem rúma allt frá 10 upp í 200 manns
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 32 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Veitingastaður
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
Vistarverur
- Hárþurrka
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf