fbpx Costa Meloneras, fjögurra stjörnu hótel á besta stað í Meloneras

Lopesan Costa Meloneras Resort & Spa
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Lopesan Costa Meloneras er fimm stjörnu glæsihótel á besta stað í Meloneras sem er heill heimur út af fyrir sig. Á hótelinu eru ótal afþreyingarmöguleikar, stærðarinnar sundlaugagarður og afar falleg heilsulind. 

Hótelið opnaði nýlega aftur, eftir miklar endurbætur og býður upp á afar glæsilega aðstöðu hvort sem það eru herbergin sjálf eða aðstaðan, sem dæmi má nefna stóran sundlaugagarð sem er einstaklega glæsilegur, með fjórum sundlaugum, nuddpottum og meira að segja lítilli manngerðri strönd. 

Öll herbergi eru rúmgóð og afar vel búin öllum nútímaþægindum, eins og sjónvarpi, síma, öryggishólfi, loftkælingu, minibar svo eitthvað sé nefnt. Inn á baðherbergjum má finna hárþurrku og helstu snyrtivörur. 

Fjölbreytt skemmtidagskrá er fyrir alla aldurshópa og á kvöldin er boðið upp á lifandi tónlist og skemmtun. Á hótelinu eru auk þess sex veitingastaðir þar sem hægt er að finna úrval gómsætra rétta og ekki nokkur vafi að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þarna eru einnig nokkrar sérvöruverslanir, keilusalur, barir bæði úti og inni og skemmtistaður, hárgreiðslustofa, minigolf og fleira. Að ógleymdri fullkominni heilsulind þar sem hægt er að stunda fjölbreytta líkamsrækt eða einfaldlega láta dekra við sig.

Lopesan Costa Meloneras býður upp á sannkallaða lúxusgistingu og veitir öllum þeim sem dvelja þar ógleymanlega upplifun. Ströndin er staðsett rétt hjá hótelinu og er þar skemmtileg strandgata með fjölbreyttu úrvali veitingastaða og verslanna allt um kring, að ógleymdu óviðjafnanlegu útsýni yfir hafið. 

Hér er hlekkur með öllum helstu upplýsingum um sóttvarnir og ráðstafanir sem gripið hefur verið til á Lopesan Costa Meloneras

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 35 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
  • Frá strönd: 200 m

Aðstaða

  • Nettenging
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Gufubað
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Barnadagskrá
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Minibar
  • Kaffivél: Inná sumum herbergjatýpum
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun