Maritim proArte
Vefsíða hótels
Maritim proArte hótelið er stórt og vel skipulagt hótel á frábærum stað í hjarta Berlínar. Hér er allt til alls, góðir veitingastaðir, heilsulind og auðveldar samgöngur til að komast leiðar sinnar í þessari sögufrægu og skemmtilegu borg.
Á hótelinu eru í heildina 403 herbergi sem skiptast í tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi. Herbergin eru snyrtileg og björt, veggir eru ljósmálaðir, húsgögn í ítölskum stíl og teppi eru á gólfum. Í öllum herbergjum er loftkæling, internet, sjónvarp, míníbar og öryggishólf. Baðherbergi eru flísalögð með marmaraflísum. Þar eru baðkar og sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Á hótelinu eru tveir góðir veitingarstaðir þar sem er boðið upp á alþjóðlega sem og þýska rétti sem hægt er að njóta í rólegu og notalegu andrúmslofti. Á hótelinu er einnig bar sem býður upp á mikið úrval af kokteilum og öðrum drykkjum ásamt því að þar er hægt að fá létta rétti og snarl. Í Berlín er fjöldinn allur af frábærum veitingahúsum og börum svo það er stutt í ævintýrin í allar áttir frá hótelinu.
Á hótelinu er heilsulind með innisundlaug, sánu, gufubaði svo þar er góð aðstaða til að slaka á eftir skoðunarferð um borgina. Í heilsulindinni er hægt að panta nudd og aðrar meðferðir til að dekra svolítið við sig. Á hótelinu er einnig góð líkamsræktaraðstaða svo hægt er að halda rútínunni á meðan á dvölinni stendur.
Maritim proArte hótelið er góður valkostur fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna, hver sem tilgangur ferðarinnar er. Stutt er frá hótelinu í verslunargötuna, menningarupplifun og sögulegar minjar og allar samgöngur eru í næsta nágrenni.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 10 km
- Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
- Miðbær: Við Friedrichstraße-neðanjarðarlestarstöðina og Admiralspalast-leikhúsið
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
- Loftkæling: og kynding
Fæði
- Morgunverður