fbpx Novotel Al Barsha | Vita

Novotel Al Barsha
4 stars

Vefsíða hótels

Novotel Dubai Al Barsha er 4 stjörnu hótel  í miðbæ Dubai með 465 herbergi og þægilegum aðgangi að helstu stöðum borgarinnar.  Fullkomið fyrir þá sem vilja dvelja í hjarta Dubai!  

Á hótelinu er mjög góð aðstaða eins og fallegur sundlaugargarður með upphitaðri útisundlaug, sólbaðsaðstöðu og bar þar sem hægt er að fá sér snarl á milli sundspretta eða til að hvíla sig á sólargeislunum. Veitingastaður er á hótelinu þar sem hver vikudagur hefur sinn eiginn matseðil og er reynt að leggja áherslur á mismunandi matargerð frá hinum ýmsu löndum að hverju sinni. Morgunverður er innifalinn og er hann framreiddur af hlaðborði. Fyrir þá sem vilja rækta líkamann er bæði góð líkamsræktaraðstaða á hótelinu ásamt heilsulind.

Herbergin eru snyrtileg og stílhrein, öll eru þau með sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar, te- eða kaffiaðstöðu, hárþurrku og baðherbergjum sem hafa að geyma helstu snyrtivörur og eru ýmist með baðkari eða sturtu. 

Novotel Dubai Al Barsha er fullkomlega staðsett á Al Barsha svæðinu í Dubai og býður upp á greiðan aðgang að öllum helstu áhugaverðu stöðunum í borginni og er aðeins í stuttri göngufjarlægð frá neðanjarðarlestarstöðinni.  Auðvelt er að komast á alla staði í borginni frá þessu flotta hóteli.  

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur
  • Miðbær: 12 km.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Minibar

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun