fbpx The Cove Rotana Resort, Ras Al Khaimah | Vita

The Cove Rotana Resort, Ras Al Khaimah
5 stars

Vefsíða hótels

Hótel Cove Rotana er fallega staðsett við sjávarsíðuna við töfrandi Persaflóa og lofar ógleymanlegri dvöl í Ras Al Khaimah.

Þetta eftirsóknarverða fimm stjörnu hótel blandar saman heimsklassa veitingastöðum og afar glæsilegri aðstöðu með arabískum þokka og er kjörinn áfangastaður fyrir eftirminnilega dvöl.

204 stílhrein og notaleg herbergi eru ásamt 50 lúxus smáhýsa með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum. Góð aðstaða er fyrir hina ýmsu afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri, þar á meðal tvær sundlaugar, barnalaug,  600 metra einkaströnd, fjölbreytt úrval af vatnaíþróttum,  líkamsræktar- og vellíðunarklúbbur með fullbúinni líkamsræktaraðstöðu og heilsulindaraðstöðu. Fyrir matgæðinga er hótelið einn eftirsóttasti áfangastaður Ras Al Khaimah  með sína sex spennandi veitingastaði sem bjóða upp á úrval af alþjóðlegri matargerð á fallegum og spennandi stöðum, sumir með útsýni yfir ströndina og sjóinn sem svíkur engan. 

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt, á hótelum í Ras Al Khaimah. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 mín

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Íbúðir

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun