fbpx Villa Cortes, 5 stjörnu lúxúshótel. Ameríska ströndin

Villa Cortes Gran Luxe Spa, Playa de las Américas
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Villa Cortes er vel staðsett við amerísku ströndinni. Á hótelinu er fallegur sundlaugargarður, herbergi með teppum og tekki, heilsulind, setustofur og góðir veitingastaðir.

Hótelið er byggt eins og mexíkanskur herragarður með 151 herbergi.

Íburðarmikil málverk á veggjum, efnismikil gluggatjöld, lampar og fallegar tekk mublur prýða hótelið. Herbergin eru loftkæld, öll með baðslopp, hárþurrku, sjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum, síma og svölum eða verönd. Þráðlaus nettenging er í boði í sameiginlegum rýmum og herbergjum. Einnig er Ihome á herbergjum og Nespresso kaffivél. Með kaffivélinni fylgja 4 kaffihylki á dag. 
Hægt er að sérpanta svítur.

Veitingastaðir hótelsins eru nokkrir, opnir á mismunandi tímum. Veitingastaðurinn Veracruz er með girnilegt morgunverðarhlaðborð. Á Bräuhaus er oftast opið fram á kvöld. Þar er falleg verönd og þýskt yfirbragð. Beach Club er með dásamlegt útsýni. Þar fást léttir réttir yfir daginn og oftast fram á kvöld. Tiziano er ,,a la carte" veitingastaður með suðræna miðjarðarhafsrétti. 
La Sirena er hádegisverðarstaður við sundlaug. Pancho Villa er mexíkóskur staður sem er oftast opinn á sunnudögum. Opnunartímar geta breyst. 
Hægt er að velja um morgunverð eða hálft fæði.

Þrír barir eru á Villa Cortes, einn í gestamóttöku, annar er píanóbar með lifandi tónlist og svo er þægilegur strandbar. 

Andrúmsloftið á Villa Cortes er einkar notalegt í garðinum er stór sundlaug og þægilegir sólbekkir. Gengið er beint úr garðinum niður á litla einkaströnd.

Heilsulindin er með tyrknesku baði og fínustu nuddarar auka á vellíðan hótelgesta. Einnig má taka vel á í tækjasalnum eða spila tennis við hótelið.

Villa Cortes er Europe hótel. Þetta er hótel fyrir þá sem vilja vera nálægt strönd í huggulegu umhverfi með fjölbreytta þjónustu.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 20 km
  • Frá miðbæ: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Nettenging: Í gestamóttöku og þráðlaust á herbergjum
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Herbergi: Tveggja manna herbergi
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun