fbpx Aðventusigling á Dóná | Vita

Aðventusigling á Dóná

Jólamarkaðir og sigling

UPPSELT

Þessi ferð er uppseld. Ennþá er laust í aðventusiglingu á Rín.

Hafa samband

Myndagallerí

Aðventusigling og jólamarkaðir

Jólamarkaðir og sigling á Dóná  
28. nóvember  - 3. desember
Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Uppselt

Munchen, Þýskalandi - Engelhartszell, Vín og Linz Austuríki - Bratislava, Slovakíu. 


vienna_cristmas_market_2.jpg

Stutt ferðalýsing  
Siglt á milli jólamarkaða í yndislegum bæjum og borgum við Dóná með A-Rosa Donna.

28. nóvember er flogið með Icelandair til Munchen og ekið á hótel þar sem gist er eina nótt. Að morgni 30.nóvember er síðan ekið til Engelhartszell í Austurríki þar sem farið er um borð í A-Rosa Donna um miðjan dag. Siglt af stað kl. 17:00. Næsta morgunn er siglt fram hjá Wachau á leiðinni til Vínarborgar þar sem komið er kl. 13:00 og deginum eitt þar. Síðan er siglt til Bratislava og hálfur dagur í höfn áður en siglt er til Linz í Austurríki. Þaðan er svo siglt er aftur til Engelhartszell. Komið í land að morgni og ekið aftur til Munchen. Flogið heim til Keflavíkur kl. 13:05 og lent kl. 16:00.


a_rosa_donna.jpg

Donna frá A-Rosa skipafélaginu
Donna var smíðað árið 2002 og skráð í Þýskalandi.  Hún er 124,5 m á lengd og 14.4 m á breidd. Það eru 100 káetur um borð og ber hún hámark 206 gesti. Káetur eru annarsvegar með gluggum og einnig eru káetur með svölum sem kallast Julette Svalir ( Opnanlegar hurðir með handriði). Klefarnir eru vel útbúnir öryggishólfi,loftkælingu,sjónvarpi,hárblásara og baðherbergi með sturtu. Sloppar og ullarteppi eru í herbergjunum.
Á 4. dekki er útisvæði með púttsvæði, stóru taflborði, upphitaðri sundlaug og fl. Auk þess sem um borð er líkamsrækt, gufuböð,snyrtistofa, veitingastaður og bar svo fátt eitt sé nefnt.  

Flug upplýsingar  

Flugnúmer dags Flugvöllur kl. Flugvöllur kl.
FI532 28.nóvember Keflavík 07:20 Munchen 12:05
FI 533 3.desember Munchen 13:05 Keflavík 16:00

Siglingaleiðin. 

Dagur  Áfangastaður  Koma Brottför
29. nóvember Engelhartszell, Austurríki   17:00
30. nóvember Siglt um Wachau dal um morguninn    
30. nóvember Vínarborg, Austurríki  13:00 23:30
1. desember Bratislava, Slóvakíu 05:00 13:00
2. desember Linz, Austurríki 14:00 22:00
3. desember Engelhartszell, Austurríki  07:00  

A_Rosa_River_Cruise.jpg

Fimmtudagur 28. Nóvember Keflavík - Munchen. 
Flogið með Icelandair til Munchen kl. 07:20 að morgni og lent í Munchen kl. 12:05. Ekið á hótel í Munchen þar sem gist er eina nótt á Courtyard Munich City sem er 4ra stjörnu hótel vel staðsett í Munchen. Dagurinn frjáls en fararstjóri mun bjóða upp á gönguferð á jólamarkað.  


a_rosa_cabin_julette.jpg

Föstudagur 29. Nóvember Munchen – Engelhartszell í Austurríki. 
Morgunverður á hótelinu. Um hádegi er lagt af stað og ekið til Engelhartszell í Austurríki þar sem tékkað er inn á Donna, skipið sem gist verður í næstu 4 næturnar. Síðan er lagt af stað kl. 17:00.  hér verður hægt að njóta þess sem í boði er um borð og síðan er kvöldverður og skemmtun.  


christmas_market_vienna_vin_jol.jpg

Laugardagur 30. Nóvember Wachau og Vínarborg 
Um morguninn er siglt um Wachau dalinn sem er undurfagur 32 km langur dalur, áður en komið er til Vínar.
Vín er höfuðborg Austurríkis og er alveg einstök borg.  Sagt er að íbúar hennar hljómi eins og þeir séu að syngja þegar þeir tala. Vinarborg á sér marga fallega staði og sérstaklega á aðventunni þegar jólamarkaðirnir tæla til sín fólk með kanillykt, glögg og sætindum. Jólatónlist og falleg handverk freista í þessari fallegu borg. Stoppað í Vínarborg frá kl. 13:00 – 23:30 svo það er einnig hægt að njóta kvöldsins.  


bratislava_cristmas.jpg

Sunnudagur 1. desember Bratislava, Slóvakíu 
Í Bratislava búa um það bil 450,000 einstaklingar en borgin er staðsett á vinstri bakka Dónár. Borgin er ung höfuðborg – reyndar sú yngsta í Evrópu.  Í gamla bænum má sjá leifar af veldi Austurríkis-Ungverjalands, hvar sem farið er um. Þessi afslappaða borg í barokk- og rókókóstíl með hallir og menningu, list og kaffihús, er fullkominn staður til að ráfa um, njóta fallegra kennileita og slaka á í leiðinni. Donna leggst að bryggju eldsnemma þennan morgunin og stoppar til kl. 13:00.  


linz_cristmas_market.jpg

Mánudagur 2. desember Linz, Austurríki.  
Síðasti viðkomustaður í þessari siglingu um Dóná er Linz sem iðar af menningu og sannkölluðum lisaverðmætum. Á aðventunni er hún sérstaklega falleg og skemmtileg. Mikið er af Jólamörkuðum og allir komast í jólaskap á Christkindlmarkt, sem einfaldlega er dásamlegur. 


vienna_cristmas_market.jpg

Þriðjudagur 3. desember Engelhartszell – Munchen - Keflavík.  
A- Rosa Donna kemur til hafnar kl. 07:00 að morgni og þá er það bara síðasti morgunverðurinn um borð. Um kl. 08:00 er rútan komin og þá er ekið beint á flugvöllinn í Munchen þaðan sem flogið er heim til Íslands kl. 13:05 og lent kl.16.00  

Sjá nánari ferðalýsingu

UPPSELT

Þessi ferð er uppseld. Ennþá er laust í aðventusiglingu á Rín.

Hafa samband
  • Hagnýtar Upplýsingar

  • Verð og innifalið

Gististaðir

Kort

Sjá alla gististaði
  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef MUC

    4 klst

    Morgunflug

  • Gjaldmiðill

    Evra

    Gengi

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun