fbpx Róm og Napólí | Vita

Róm og Napólí

Heillandi Ítalía

Ferðir
Flug

Myndagallerí

8 nætur á Ítalíu - Róm og Napólí. Fjölbreyttar skoðunarferðir með reyndum fararstjóra
25.sept - 3. október

Einstæð og hrífandi menningarferð til Ítalíu þar sem stórkostlegar borgir, náttúruundur og margslungið mannlíf blandast saman. Við hefjum ferðina í Róm og  gistum þar í þrjár nætur. Í Róm njótum við dýrgripa  borgarinnar: M.a. Vatikansafnsins, Sixtusar Kapellunnar og Péturskirkjunnar, Colosseum leikvangsins og Pantheon hofsins - og  förum í fræðandi gönguferð um miðbæinn.

Að morgni fjórða dags liggur leiðin suður að eldfjallinu Vesuviusi með stuttu stoppi á leiðinni. Við njótum útsýnis frá gígbarminum og snæðum hádegisverð á völdum veitingastað áður en við heimsækjum óviðjafnalegar rústir Pompei borgar. Þaðan er haldið til Napolí og gist þar næstu fjórar nætur.

Í Napolí  bíða okkar ógleymanleg ævintýri. Við ökum fyrst vestur fyrir borgina að einni  öflugustu öskju í heimi, Campi Flegrei, og förum síðan í gönguferð  um magnþrungin miðbæ Napolí og lítum m.a. inn á fornminjasafnið. Einn dagur er frjáls og þá er tilvalið að rölta um og upplifa borgina á eigin spýtur. Við siglum einnig til Capri þar sem við njótum dagsins á þessari gullfallegu eyju.

Á leiðinni aftur til Rómar stoppum við í Tívolí og skoðum bæði Villu Hadrianusar og garða Villa d’Este áður en við gistum síðustu nóttina í Róm. Heimferð næsta dag.

Róm

“Til að lýsa Róm þyrfti að skrifa með þúsund pennum.” sagði þýska stórskáldið Goethe sem var ferðalangur þar á 18. öld. Í borginni eilífu er nefnilega meira að sjá en í nokkurri annarri borg í heiminum og á þessum dögum gerum við okkar besta til að skoða sem mest. Sem betur fer er stutt á milli helstu kennileita; það er þægilegt að vera fótgangandi í Róm og alls staðar eru kaffihús og torg til að hvíla lúin bein.

Nútími og arfleifð hins forna lifa góðu lífi hlið við hlið í þessari dásamlegu borg. Róm hefur um aldir verið sögusvið keisara, páfa og pílagríma auk ferðamanna sem allir  hafa orðið þar frá sér numdir. Andrúm borgarinnar, fjölskrúðugt mannlíf, menning og saga lætur engan ósnortinn.

Napólí

Napólí ættu allir að fá að sjá og upplifa a.m.k. einu sinni á ævinni. Þegar þú hefur séð Napólí, hefur þú séð allt. Þannig gæti hljómað í frjálslegri þýðingu ítalska máltakið „Vedi Napoli e poi muori.“ Átt er við fjölbreytileika og ómótstæðilegan sjarma þessarar suðurítölsku borgar og næsta nágrennis. Hugrenningar fara strax á flug: Við sjáum fyrir okkur marglita markaði í þröngum og krókóttum götum gamla bæjarins, opnar útidyr og þvott á snúrum milli húsa, heyrum hróp og köll og einnig milt vélarhljóð í vespum og Fíat 500 og kannski leikið á gítara og mandólín; ys og þys mannlífsins í öllum sínum tilbrigðum og tóntegundum – og finnum ilminn af pizzum sem héðan eru upprunnar. Menningarvinir geta svo hlakkað til að berja augum í borginni byggingar og listaverk frá ýmsum tímum. 

Sjá nánari ferðalýsingu
Ferðir
Flug
  • Hagnýtar upplýsingar

  • Ferðatilhögun

  • Verð og innifalið

Gististaðir

Kort

Sjá alla gististaði
  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef FCO

    4,5

    Morgunflug

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun