Melia Barcelona Sky hotel
Vefsíða hótels

Glæsilegt og nýtískulegt fimm stjörnu hótel í 120 metra háum turni með einstöku útsýni á frábærum stað í Barcelona. Tilvalið fyrir fólk jafnt í einka- sem viðskiptaerindum.
Meliá Barcelona Sky stendur rétt við Avenida Diagonal og ekki er nema tíu múnútna gangur niður á strönd. Auðvelt er að komast að helstu ferðamannastöðum í Barcelona eins og Kirkju hinnar helgu fjölskyldu, Miro-safninu og Camp Nou svo að eitthvað sé talið.
Í þessum 29 hæða, 120 m háa turni eru 213 stílhrein, nútímaleg, rúmgóð og björt herbergi búin öllum hugsanlegum þægindum, frábærri hönnun og uppfylla kröfur vandlátustu gesta. Útsýni er ýmist yfir sundlaugargarð, út á sjó eða yfir borgina. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn. Á meðal búnaðar er 32 tommu gagnvirkt plasmasjónvarp, beinn sími, öryggishólf sem rúmar fartölvu, stillanleg lýsing, stillanleg loftkæling og upphitun, rafdrifin gluggatjöld, rafeindalæsing á hurð, smábar (gegn gjaldi) og skrifborð með mótaldi fyrir internettengingu eða þráðlaust internet, ókeypis að sjálfsögðu. Baðherbergið er baðað náttúrulegri birtu og þar er ýmist svokölluð „regnsturta“ eða baðker og hin skylduga hárþurrka. Ýmis þjónusta er fáanleg gegn aukaþóknun, til dæmis ungbarnarúm, barnagæsla, iPod-leiga og þvottur.
Barinn og veitingastaðirnir í Meliá Barcelona Sky-hótelinu eru opnir hótelgestum, borgarbúum og ferðamönnum í borginni. Fyrstan skal nefna Dos Cielos. Hann er á 24. hæð og eins og hæfir í turni er hann hann rekinn af Torres-bræðrum. Útsýni er allan hringinn. Veitingastaðnum fylgir verönd þar sem hægt er að njóta matar og drykkjar úti undir berum himni í mildu Miðjarðarhafsloftslaginu. Um matinn er aðeins þetta að segja: Staðurinn skartar Michelin-stjörnu. Segir allt sem segja þarf.
The Place er á jarðhæð og þar má fá alls konar kræsingar að morgni, um miðjan dag og á kvöldin.
Á The Place-kokkteilbar og verönd er boðið upp á drykki, smárétti og nasl frá morgni og langt fram yfir miðnætti.
Le Pool-klúbburinn er á sjöttu hæð og skartar risastórri verönd með sundlaug þar sem gestir geta notið drykkja,smárétta og grillrétta.
Útisundlaug er við hótelið og innilaug í því, auk heilsulindar, nuddpotts, líkamsræktaraðstöðu og snyrtistofu
Glæsihótel af þessu tagi býður að sjálfsögðu upp á fjölmarga ráðstefnu- og fundarsali af ýmsum stærðum, búna nýjustu og fullkomnustu græjum, og „viðskiptamiðstöð“ (fax-, ljósritunar- og prentþjónusta) er opin allan sólarhringinn.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 15 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Strönd: 6 km
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Herbergi: Herbergi standard með borgarútsýni
Vistarverur
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf