fbpx Valle del Este á Spáni | Vita

Valle del Este á Spáni

Ótrúlega spennandi golfvöllur við glæsilegt hótel

Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið

Myndagallerí

Fullt fæði, ótakmarkað golf og golfbíll. 

Hægt er að sjá allar dagsetningar, flugtíma og verð í bókunarvél hér til hægri.

Við Miðjarðarhafsströnd Spánar á milli borganna Murcia og Almeria er sannkölluð golfperla. Stutt er til næstu bæja, Vera ca. 5 mín. akstur og ca. 10. mín. akstur er til Garrucha. "Frá flugvellinum í Alicante er u.þ.b. 2ja tíma og 10 mín.  akstur til Valle del Este. Sjá kort

Fyrsti teigur er beint fyrir utan hótelið ásamt æfingasvæði. Búið er að útbúa nýtt glæsilegt stuttaspils svæði þar sem hægt er að slá allt að 100 metra högg. Góð sundlaug til að henda sér í eftir hringinn, veitingastaður, bar og verslun með einstaklega smekklegar og flottar golfvörur og svo sjálfur golfvöllurinn er beint fyrir utan hótelið.
 
Gestum líður afar vel á hótelinu sem er með björt herbergi og alla aðstöðu sem til þarf m.a. glæsileg heilsulind/Spa. Lítil verslunarmiðstöð er við hliðina á hótelinu og þar er m.a. lítil kjörbúð, kaffihús og nokkrir veitingastaðir Tapas og Tælenskur. Valle del Este er draumur hvers kylfings, einstaklega fallegur golfvöllur. Valle del Este er virkilega skemmtilegur valkostur fyrir alla kylfinga.
Sjá nánar um Valle del Este
Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið
  • Innifalið

  • Hagnýtar upplýsingar

Valle del Este ummæli

 

Við hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar fórum með stóran hóp GM félaga til Valle del Este með VITAgolf. Ferðin var í alla staði frábær, golfvöllurinn stórskemmtilegur og krefjandi og öll aðstaða virkilega góð. Við fengum frábæra þjónustu og það vildu allir á svæðinu allt fyrir okkur gera. Siggi Palli fararstjóri sá vel um okkur ásamt því að laga sveifluna hjá okkur sem það þurftu.

Ég get svo sannarlega mælt með VITAgolf, öll þjónustu til fyrirmyndar og virkilega vel hugsað um okkur!

- Ágúst Jensson - nóvember 2021

Gististaðir

Sjá alla gististaði
  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef ALC

    4,5 klst

    Hádegisflug

  • Gjaldmiðill

    Evrur

    Gengi

  • Golf

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun