fbpx Vidamar Hótel, Salgados | Vita

Vidamar Hótel, Salgados
5 stars

Vefsíða hótels

Vidamar Resorts er  5* hótel sem stendur aðeins 150 metra frá Salgados- ströndinni í sólskinsparadísinni Algarve. Á staðnum eru fjórir veitingastaðir, þrír barir og eitt kaffihús. 
Í hótelgarðinum eru þrjár sundlaugar, þar af ein upphituð og hægt að synda upp að einum hótelbarnum.

Herbergin á Vidamar Resorts-hótelinu eru ágætlega rúmgóð. Þau eru loftkæld, með sjónvarpi, þráðlausum netaðgangi, og svölum. Svalirnar eru með útsýni annaðhvort yfir hótelsvæðið, náttúruverndarsvæðið og golfvöllinn, pálmagarðana og sundlaugarnar eða út á hafið. 

Veitingastaðir: 

Á Ocean-veitingastaðnum er borinn fram  morgunverður á hlaðborði og þar er einnig hægt að snæða kvöldverð.

Á Sabor a Mar er boðið upp á portúgalska rétti af matseðli auk léttra rétta og er staðurinn opinn yfir daginn. Mamma Mia sérhæfir sig í ítalskri matreiðslu eins og nafnið gefur til kynna. Koi býður upp á japanska rétti af matseðli, til dæmis sushi, og er opinn á kvöldin.

Auk ofantalinna veitingastaða eru þrír barir og eitt kaffihús á hótelsvæðinu.
Innifalið í verði hótelsins er hálft fæði sem er morgunverður og kvöldverður á Ocean veitingastaðnum. Vilji gestir hótelsins borða kvöldverð á öðrum veitingastöðum dregst ákveðin upphæð frá málsverðinum. 

Allir gestir 16 ára og eldri hafa aðgang að líkamsræktinni og heilsulindinni Atlantic. 

Við hótelið er hinn glæsilegi 18 holu Salgados-golfvöllur með öllum þægindum svo sem búningsaðstöðu, klúbbhúsi, golfverslun með gott úrval, golfbílum o.fl. o.fl. Þar er einnig starfræktur golfskóli með fyrirtaks æfingaaðstöðu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu
  • Strönd: 150 m

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Nettenging
  • Herbergi: Herbergi standard og pool view

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun