Peter Salmon
Fararstjóri
Peter Salmon er Englendingur, fæddur í Hong Kong 1957. Árið 1981 fluttist hann til Islands ásamt konu sinni, Ólöfu Guðmundsdóttur.
Strax á fyrsta ári sínu á Íslandi gekk Peter í GR og hefur hann verið meðlimur þar síðan. Fljótlega eftir komuna til Íslands lækkaði Peter niður í 2 í forgjöf og keppti í fullu á mótaröðinni og einnig í nokkrum mótum erlendis. Peter Salmon, stofnaði golfdeild Úrvals-Útsýnar árið 1993.
Haustið 2009 ákvað Peter að flyta sig um set til VITA og veitir þar nýrri golfdeild forstöðu. Á vegum Peters hafa verið seldar yfir 20.000 golfferðir og hefur hann sjálfur spilað á yfir 250 golfvöllum í 34 löndum.