Sigfús Ólafsson
Fararstjóri
Sigfús er með BA próf í Sagnfræði og spænsku frá Háskóla Íslands og Meistarapróf í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá sama skóla. Sigfús hefur ferðast mikið um Mexíkó, Kúbu og önnur lönd rómönsku Ameríku.
Sigfús Ólafsson er borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann gékk í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan sumarið 1994 og hélt þá til Mexíkó. Þar vann hann sem sjálfboðaliði við kennslu í grunnskóla í Tlaxcala. Þar með var teningunum kastað.
Þegar heim var snúið hóf Sigfús nám við Leiðsöguskóla Íslands og í spænsku við Háskóla Íslands. Sigfús er með BA próf í Sagnfræði og spænsku frá Háskóla Íslands og Meistarapróf í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá sama skóla. Sigfús hefur ferðast mikið um Mexíkó, Kúbu og önnur lönd rómönsku Ameríku. Hann bjó tæpt ár í Madríd á Spáni og var fararstjóri fyrir Samvinnuferðir Landsýn á Benidorm tvö sumur. Sigfús hefur verið fararstjóri í sérferðum til Kúbu, Mexíkó og Tékklands. Ferð Sigfúsar til Kúbu í Febrúar 2015 verður 35 ferð hans til Kúbu, en þangað kom hann fyrst árið 1996.
Sigfús er áhugamaður um sagnfræði og tónlist og er meðal annars trymbill hljómsveitarinnar Tvö dónaleg haust. Hann er með ástríðu fyrir ferðalögum og matargerðarlist og vill helst blanda þessu tvennu saman á góðum degi. Sigfús er kvæntur og á þrjú börn.