fbpx Holiday Inn Madrid | Vita

Holiday Inn Madrid
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Holiday Inn í Madrid er gott 4 stjörnu hótel, frábærlega staðsett í 2ja mínútna göngufjarlægð frá Santiago Bernabeu leikvanginum. Fjöldi góðra veitingastaða er í næsta nágrenni hótelsins að ógleymdum verslunum, veitingastöðum og kaffihúsum.

Á hótelinu eru 313 tveggja manna herbergi . Öll herbergi eru með loftkælingu (hita), sjónvarpi með alþjóðlegum rásum, síma, þráðlausri nettengingu gegn gjaldi,  öryggishólfi, smábar og hárþurrku á baði sem er með baðkari eða sturtu. Herbergjaþjónusta er í boði á vissum tímum.

Á hótel Holiday inn er gufubað, líkamsræktaraðstaða og útisundlaug sem er opin á sumrin.  Þar er einnig veitingastaður, bar, setustofa, skyndibitastaður , sælkeraverslun  og hárgreiðslustofa. 
Þráðlaus nettengingu er gegn gjaldi. 

5 km eru niður á Gran Via, sem er í miðborginni ( 12mín akstur)  og jarðlestarstöð er steinsnar frá hótelinu.

Frábært hótel fyrir þá sem langar að sjá knattspyrnuleik á hinum stórkostlega 80.000 manna leikvangi Santiago Bernabeu, sem er heimavöllur Real Madrid. 
 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 mín.akstur
  • Miðbær: 15 mín gangur
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun