fbpx Tallink Spa and Conference Hotel | Vita

Tallink Spa and Conference Hotel
3,5 stars

Vefsíða hótels

Flott hótel skammt frá ferjuhöfninni í miðborg Tallinn og einkar hentugt fyrir helgarferðir. Stutt að ganga í gamla miðbæinn og fyrirtaks aðstaða bæði einstaklinga og hópa.

Á hótelinu eru 275 herbergi, litrík, þægileg og nútímaleg, með sérbaðhebergi, baðslopp, sjónvarpi, síma, hárþurrku, smábar, öryggishólfi og ókeypis þráðlausri nettengingu. Öll herbergi eru reyklaus.

Hótelið státar af rúmgóðum veitingastað, Nero, sem býður upp á alþjóðlegar kræsingar og hefur verið á lista yfir 50 bestu veitingastaði í Eistlandi síðan hann var opnaður. Á jarðhæð er bar þar sem hægt er að fá heita og kalda drykki, girnilegar samlokur og úrval af heimagerðum kökum. Á 5. hæð hótelins er notalegur vindlabar, Fidel, þar sem hægt er að slaka á og virða fyrir sér útsýnið.

Á 2. hæð eru sex ráðstefnusalir og tekur sá stærsti 263 manns í sæti. Í sölunum er allur nauðsynlegur ráðstefnubúnaður, loftræsting og ókeypis þráðlaus nettenging. Fín aðstaða fyrir árshátíð!

Í heilsulindinni Aqua Spa er tilvalið að endurnæra sál og líkama. Þar eru sundlaugar, pottar og sánaklefar auk þess sem snyrtistofan Hera býður þjónustu sína gegn vægu gjaldi.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 5 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Sundlaug: Innilaug

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun