Brooks Boutique
Vefsíða hótels

Einstaklega fallegt fjögurra stjörnu hótel mjög vel staðsett í miðborg Dyflinnar. Hótelið lætur ekki mikið yfir sér þegar komið er að því, en þegar inn er komin er allt sérlega smekklegt. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street að Trintity College og í Temple Bar hverfið.
Veitingarstaður hótelsins Francesca's Restaurant er einn af betri veitingastöðum borgarinnar og barinn Jasmine er nútímalegur og smart. Á hótelinu er einnig tækjasalur og sauna. Herbergi eru hlýleg og búin helstu þægindum eins og síma, gervihnattasjónvarpi með flatskjá, kvikmyndarásum, nettengingu, smábar og hárþurrku.
Brooks Hotel er meðlimur í Small Luxury Hotels of the World. Það hefur verið valið eitt af 100 bestu dvalarstöðum á Írlandi í Bridgestone-leiðsöguvísinum síðastliðin 3 ár.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 13 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Gestamóttaka
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Veitingastaður: Francesca's býður upp á írska og alþjóðlega matreiðslu auk þess er notalegt kaffihús á hótelinu
- Bar: Jasmine Bar er fyrsti 'Great Whiskey Bar of the World" bar Írlands.
- Nettenging: frítt wifi á herbergjum og sameiginlegum rýmum
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
Fæði
- Morgunverður