Labranda Isla Bonita, Costa Adeje
Vefsíða hótels
Vel staðsett hótel í Costa Adeje með öllu inniföldu.
Einföld en rúmgóð herbergi með loftkælingu, svölum, síma, baðherbergi, hárblásara og þráðlausri nettengingu. Öryggishólf gegn gjaldi.
Hótelið er vel staðsett, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá Fañabe ströndinni. Stutt í verslanir og afþreyingu, svo sem vatnsrennibrautagarðinn Siam Park.
Góður sundlaugagarður með tveimur sundlaugum og tveimur barnalaugum. Á hótelinu er einnig að finna tennisvöll, íþróttasal og líkamsræktaraðstöðu. Leiksvæði og barnaklúbbur fyrir börn á aldrinum 4 til 12 ára.
Á veitingastaðnum er borinn fram morgun-, kvöld- og hádegisverður á hlaðborði. Innlendir drykkir eru innifaldir.
Einfalt en snyrtilegt og vel staðsett hótel fyrir alla fjölskylduna.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 20 km
- Strönd: 5 min ganga á Fañabe ströndina
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
Fæði
- Allt innifalið