Salgados er nýtt hverfi þar sem hótelin mynda lítið þorp, en auk hótelanna er 18 holu golfvöllur, matvöruverslanir, veitingastaður, tveir barir, hraðbanki auk nokkura smáverslana. Ströndin er hreint makalaus, löng, breið og hvít. Ein sú besta í Algarve.
Frá Salgados er aðeins 5 mínútna akstur í litla bæinn Guia heimabæ Piri Piri kjúkklingsins og í verslunarmiðstöðina Algarve shopping. Albufeira, sem er í 10 mínútna akstursfjarlægð, er stór ferðamannabær með fjörugu mannlífi, verslunum, veitingastöðum og börum á hverju horni.
Auðvelt er að komast til Albufeira með því að kaupa sér miða í „hop on hop of“ rútu eða taka leigubíl.
Flugtími er mismunandi eftir dagsetningum: