Sigurlaug Margrét Jónasdóttir
Fararstjóri
Sigurlaug tengdist Ítalíu órjúfandi böndum þegar hún bjó í Flórens. Ítölsk matarmenning stendur hjarta hennar og huga afar nærri.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir útvarpskona tengdist Ítalíu órjúfandi böndum þegar hún bjó í Flórens fyrir um það bil 20 árum. Sigurlaug hefur síðan þá verið með fjölda útvarps og sjónvarpsþátta um ítalska matarmenningu, sem stendur hjarta hennar og huga afar nærri. Ítölsk menning, hvort sem er í tónlist, myndlist, hönnun eða lífsstíl, er henni sérstakt áhugamál og ástríða. Sigurlaug hefur farið ótal ferðir til síns fyrirheitna lands, ekki bara til hinna frægu borga; Florens, Siena, Rómar og Feneyja , heldur líka upp í Dólómítafjöllin á skíði, út í sveitir Toscana, Umbria og Marche þar sem hin rómaða matarmenning Ítala á sér sínar dýpstu rætur. Smitandi áhugi hennar og þekking mun reynast Ítalíuförum skemmtilegt, fróðlegt og drjúgt fararnesti.
Ferðir:
-
Matur og mannlíf
Bragðgóð skemmtun! Kynnumst m.a. matarmenningu ítala. Fararstjóri, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
» NánarVerð frá
188.700kr
og 15.000 VildarpunktarÁ mann m.v. 2 í herb. á hótel Ariston með morgunv.