Steinunn Harðardóttir
Fararstjóri
Steinunn Harðardóttir leiðsögumaður er aðalfararstjóri Göngu-Hrólfs
Hún er hugmyndafræðingur Göngu-Hrólfs og hefur leitt ferðir hans frá upphafi. Hún þróar og skipuleggur ferðirnar og hefur verið fararstjóri í ferðum í hefðbundnum takti á Majorka, Krit, Toskana, Pyreneafjöllum, Slóvakíu, Tyrkland, Tenerife og í sælkeratakti í Toskana. Steinunn hefur um árabil farið með hópa Íslendinga í gönguferðir til þessara landa sem og sýnt fjölmörgum erlendum ferðamönnum helstu náttúruperlur Íslands.
Tölvupóstur: [email protected]