Sue Marie Olafsson
Fararstjóri
Sue er Nýsjálendingur sem hefur búið á Íslandi síðastliðin 20 ár. Síðustu 10 ár hefur hún unnið við ferðaþjónustu, meðal annars sem leiðsögumaður.
Sue kom fyrst til Íslands 1977 til að vinna við fiskvinnslu á Suðureyri og þar sá hún snjó í fyrsta sinn á ævinni, 22 ára gömul.
Hún vann fyrir vestan í þrjá vetur og eitt sumar, en þess á milli ferðaðist hún um Evrópu.
Sue er gift Kjartani Ólafssyni og eiga þau þrjú börn.
Síðustu 10 ár hefur hún unnið við ferðaþjónustu, meðal annars sem leiðsögumaður.
Sue fór sem fararstjóri í afar vel heppnaða ferð fyrir VITA til Nýja Sjálands árið 2013 og hefur unun af því að kynna sitt heimaland.