fbpx Alpines Balance Hotel Weisses Lamm | Vita

Alpines Balance hotel Weisses Lamm, See
4 stars

Vefsíða hótels

Fallegt fjögurra stjörnu hótel staðsett á hljóðlátum stað í fjallshlíð bæjarins See  sem er fallegur bær í Paznaun dalnum í um það bil 70km. fjarlægð frá flugvellinum í Innsbruck. 

Á hótelinu er fjölbreytt þjónusta eins og móttaka opin allan sólarhringinn, bar, setustofa og stór heilsulind þar sem er meðal annars má finna innisundlaug, gufubað, líkamsræktaraðstöðu, slökunarherbergi og lesstofu svo eitthvað sé nefnt. Á hótelinu er í boði hálft fæði sem er morgunverður og kvöldmatur og er aðaláherslan lögð á fjölbreytileika og ferskt hráefni.

Herbergi eru vel búin öllum nútímaþægindum eins og sjónvarpi, síma, öryggishólf og baðherbergi eru með helstu snyrtivörum.

Skíðarúta gengur á 30 mínútna fresti á helstu skíðasvæði í næsta nágrenni, en það nálægasta er í 850 metra fjarlægð.  

Skíðasvæði í næsta nágrenni má skoða hérna: Skíðakort og Skíðasvæði

Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITA

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun