Guinea apartments
Vefsíða hótels
Íbúðahótelið er staðsett rétt hjá Kasbah í u.þ.b. 300 metra frá ströndinni og í um 15 mínútna göngufæri við Yumbo Centre. Í næsta nágrenni eru bæði verslanir og veitingastaðir.
Einfaldar, bjartar, rúmgóðar og vel búnar íbúðir með einu og tveimur svefnherbergjum. Inn á öllum íbúðum er sjónvarp, baðherbergi og eldhúsaðstaða þar sem má finna m.a. brauðrist, kaffivél, örbylgjuofn og ísskáp. Gestamóttaka er opin allan sólarhringinn. Við hótelið er ágætur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu.
Athugið að tröppur liggja upp í sundlaugargarðinn, en íbúðir á 2.hæð eru með aðgengi beint út í garð.
Aðstaða
- Sundlaug
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Íbúðir
- Lyfta
Vistarverur
- Sjónvarp
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Kaffivél
- Þráðlaust net