H10 Lanzarote Princess, Playa Blanca
Vefsíða hótels

H10 Lanzarote Princess hótelið er glæsihótel á góðum stað í Playa Blanca. Góðir veitingastaðir, heilsulind og í heildina frábær kostur fyrir fríið.
Á hótelinu eru 407 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi, fjölskylduherbergi og svítur. Herbergin eru nútímaleg og mjög fallega hönnuð, björt og snyrtileg. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp, lítill ísskápur, öryggishólf og skrifborð. Einnig eru svalir eða verönd út frá öllum herbergjum. Baðherbergin eru falleg og mjög snyrtileg. Þau eru flísalögð í hólf og gólf og þar eru sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Á hótelinu eru þrír veitingastaðir þar sem hægt er að upplifa ólíka stemningu. Hægt er að njóta veitinga og jafnvel sýningareldamennsku af hlaðborði, eiga kósý málsverð á ítölskum veitingastað eða matarupplifun á töff asískum veitingastað. Einnig er kaffihús á hótelinu. Barirnir eru fjórir, sundlaugarbarinn er vinsæll og þar er hægt að fá snarl og drykki í hótelgarðinum en annar bar er svo ofan í sundlauginni. Lifandi tónlist er oft flutt á barnum sem er staðsettur í anddyri hótelsins og svo er líka á hótelinu leikhúsbar með skemmtidagskrá.
Hótelgarðurinn er stór og glæsilega hannaður, gróinn og nóg af plássi til að njóta lífsins í sólinni. Hér er eitthvað fyrir alla, góð aðstaða til að sleikja sólina og skemmtileg leiksvæði fyrir börnin. Á hótelinu er krakkaklúbbur sem býður upp á skemmtidagskrá, ævintýri og fjör fyrir krakka á aldrinum 4-12 ára en einnig er unglingaklúbbur þar sem hægt er að hanga og kynnast öðrum á sama reki. Góð líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og einnig er þar heilsulind með sánu og fjölmörgum heilsu- og snyrtimeðferðum í boði. Hægt er að spila mínígolf á svæðinu og jafnframt eru þar tennisvöllur og petanque völlur.
Í heildina er H10 Lanzarote Princess frábær kostur sem hentar fjölbreyttum hópum ferðamanna. Hér geta allir átt yndislega daga í sólinni.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 28 km
- Strönd: 200 m frá Playa Blanca
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Minibar
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
Fæði
- Allt innifalið
- Hálft fæði