fbpx Halleys hotel & apartments by Melia, Benidorm | Vita

Halley hotel & apartments by Melia
3 stars

Vefsíða hótels

Nútímalegt íbúðarhótel sem býður bæði upp á stúdíó íbúðir og íbúðir með tveimur svefnherbergjum. 

Gististaðurinn er staðsettur Levante meginn á Benidorm og tekur það um 10 mín. að ganga á ströndina og um 7 mínútna göngufjarlægð er á milli  Halley og hótel Melia Benidorm sem margir þekkja.

Á Halleys er  móttaka og lítill sundlaugargarður með sundlaug, barnasundlaug og sólbekkjum allt um kring. Einnig má þar finna snarlbar sem býður upp á ískalda drykki, enskan morgunverð og einfalda rétti  m.a. tapas. Hægt er að velja hvort maður situr úti eða inni.

Íbúðirnar eru nútímalega innréttaðar, einfaldar en þægilegar, útbúnar öllu því helsta sem þarf til að njóta dvalarinnar. Meðal þæginda sem boðið er upp á eru vel búin baðherbergi með helstu snyrtivörum, loftkæling, örbylgjuofn, kæliskápur, sjónvarp, setusvæði, öryggishólf með plássi fyrir fartölvu, þráðlaust internet og einkasvalir. Hótelið er átján hæðir svo útsýnið er ekki af verri endanum. 

 

Fjarlægðir

  • Frá strönd: 10 mín. göngufjarlægð
  • Frá miðbæ: 2 km.
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun