fbpx Holiday Inn & Suites Daytona Beach on the Ocean | Vita

Holiday Inn & Suites Daytona Beach on the Ocean
4 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt hótel á besta stað á ströndinni í Daytona Beach, stutt í verslanir, veitingastaði og afþreyingu af öllu tagi. Daytona-strandgatan og bryggjan eru í léttu göngufæri. Almenningssamgöngur rétt við hótelið.

Í hótelinu eru 123 smekklega innréttuð og rúmgóð herbergi og svítur sem ætlaðar eru frá tveimur fullorðnum og upp í tvo fullorðna og þrjú börn. Hægt er að fá samliggjandi fjölskylduherbergi. Innréttingar eru í dökkum við og áklæði í bláum og eplagrænum litum. Teppi eru á gólfum. Stillanleg loftkæling er alls staðar, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf, lítill ísskápur, örbylgjuofn, strauborð og -járn og aðstaða til að laga te og kaffi. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, hárþurrka og baðvörur. Svalir eru við herbergin og þráðlaus nettenging er gestum að kostnaðarlausu.

Veitingastaðirnir eru tveir. Á hlaðborðsveitingastaðnum er boðið upp á hefðbundna ameríska rétti frá morgni til kvölds auk rétta af matseðli. Seaside bistro er við sundlaugina og er blanda af setustofubar og veitingastað og þar er hægt að setjast út á veröndina og njóta útsýnisins yfir hafið með svalandi drykk við hönd. Á matseðlinum eru hefðbundnir réttir í bland við ferskt sjávarfang.
Í hótelgarðinum eru tvær sundlaugar, þar af önnur fyrir börnin, og sólbaðsaðstaða með bekkjum í kring. Þar er útsýnið óheft yfir Atlantshafið.
Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu með hlaupabrettum og stigvélum. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er lítil kjörbúð. Sjálfsafgreiðsluþvottavélar eru í hótelinu en einnig er boðið upp á samdægurs þurrhreinsiþjónustu.
Hótelið er á frábærum stað á ströndinni í Daytona, í léttu göngufæri við Daytona-bryggjuna og strandgötuna. Stutt er í alls kyns afþreyingu og vatnasport. Almenningssamgöngur stoppa fyrir utan hótelið og því er auðvelt að skoða sig um og skjótast í skemmtigarða eða verslunarleiðangur.

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í léttu göngufæri við strandgötuna
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun