fbpx Hotel Stefan, Sölden | Vita

Hótel Stefan, Sölden
4 stars

Vefsíða hótels

Gott fjögurra stjörnu hótel staðsett á frábærum stað í miðbæ Sölden. Skíðakláfurinn „Giggijoh“ er við hlið hótelisins og því auðvelt að komast í brekkurnar.

Á hótelinu er móttaka opin allan sólarhringinn, bar og heilsulind þar sem er sauna, heitur pottur, líkamsræktaraðstaða og í boði ýmsar snyrtimeðferðir (gegn gjaldi).

Á hótelinu er innifalinn morgunverður og í  næsta nágrenni er úrval af veitingastöðum. Öll herbergin eru fallega búin og rúmgóð. Í þeim öllum er sjónvarp, sími, hárþurrka, öryggishólf og fullbúið baðherbergi með helstu snyrtivörum.

Skíðasvæðið í Sölden má skoða nánar hérna: Skíðakort 

Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITA

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Innsbruck: 83 km
  • Frá skíðalyftu: Rétt hjá

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun