fbpx Kiwi apartments, Daratso | Vita

Kiwi apartments, Daratso
3 stars

Vefsíða hótels

Kiwi apartments er lágreist íbúðahótel á góðum stað í Agioi Apostoloi sem stundum er kallað fallegasta svæði Chania enda stendur það rétt við þrjár gylltar sandstrendur og heillandi sjávarflötinn.

Á hótelinu eru 24 íbúðir sem skiptast í stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Íbúðirnar eru bjartar, nútímalegar og klassískar en um leið heimilislegar. Flísar eru á gólfum og veggir eru bjartmálaðir. Í öllum íbúðum eru loftkæling, internet, sjónvarp, setustofa og öryggishólf. Íbúðirnar hafa svo lítið eldhús með ísskáp og öllum helstu eldunaráhöldum sem þarf til léttrar matargerðar. Út frá öllum íbúðum eru svalir eða verönd með útihúsgögnum og útsýni inn í garðinn. Baðherbergin eru flísalögð. Þar eru baðkar eða sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Umhverfi hótelsins er gróið og nálægt því er garður með furutrjám og fjölmörgum tegundum af fallegum gróðri. Hótelgarðurinn er lítill en þó er þar sundlaug, barnasundlaug og sólbaðsverönd með sólbekkjum, leikaðstöðu fyrir börn og aðstöðu til að grilla.  Í garðinum er bar þar sem hægt er að panta frískandi drykki og létta rétti til að njóta úti við sundlaugarbakkann. Annar veitingastaður er ekki á hótelinu en hægt er að panta herbergisþjónustu í gestamóttökunni. Í næsta nágrenni eru veitingastaðir, kaffihús og barir þar sem hægt er að setjast niður og bragða á ýmsu góðgæti frá svæðinu.

Hótelið er góður kostur fyrir fjölskyldur og þá sem sækjast eftir rólegheitum í fríinu. Það er þó stutt í gleðina inni í Chania, menninguna og skemmtanalífið í miðbænum og aðeins nokkrar mínútur tekur að komast í fjörið á ströndinni en til dæmis er þar hægt að spila blak, hlaupa eða leggja stund á aðrar íþróttir eða strandleiki.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 19 km
  • Strönd: 250 m á strönd
  • Veitingastaðir: Allt um kring. Kaffihús-bar og léttar veitingar á staðnum.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Nettenging
  • Aðgengi fyrir fatlaða: Efri hæðir eru einungis aðgengilegar með stigum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun