fbpx Mandarin Orchard, Singapúr | Vita

Mandarin Orchard, Singapúr
5 stars

Vefsíða hótels

Lúxushótel á frábærum stað við Orchard-stræti í hjarta Singapúr, stutt í verslunarmiðstöðvar, almenningssamgöngur og iðandi mannlífið í miðborginni.

Í hótelinu eru 1.077 vistarverur í tveimur turnbyggingum, sem skiptast í herbergi og svítur sem rúma frá tveimur og allt að fjórum einstaklingum. Innréttingar eru einstaklega stílhreinar og glæsilegar, í dökkum við og jarðarlitum, hlýlegar og með austurlensku yfirbragði. Öll nútímaþægindi eru að sjálfsögðu til staðar, loftkæling og upphitun, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásu, öryggishólf og smábar. Á baðherbergjum er hárþurrka, baðvörur, baðslopppar og inniskór. Þráðlaus nettenging er á hótelinu öllu, gestum að kostnaðarlausu. 

Í hótelinu eru þrír veitingastaðir sem allir hafa hlotið viðurkenningar fyrir gæðamatreiðslu, Chatterbox, Shisen Hanten by Chen Kentaro þar sem boðið er upp á kínverska rétti frá Sichuan-héraði, Triple Three þar sem hlaðborðin bera alþjóðlegt yfirbragð, og kaffihúsið Coffee & Crust og Chill out barinn þar sem upplagt er að slaka á lok dagsins með ljúfan drykk við hönd. 
Ekki er amalegt að leyfa þreytuna eftir daginn líða úr sér í útisundlauginni á fimmtu hæðinni eða leyfa keppnisskapinu að taka völdin í tennisleik í lok dags. Þeir sem það kjósa geta síðan glímt við lóðin í líkamsræktaraðstöðunni.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvottaþjónusta og þurrhreinsun, gjaldeyrisskipti, töskugeymsla og bílaleiga. Þar eru að sjálfsögðu einnig veittar upplýsingar um helstu kennileiti, ferðir og afþreyingu.

Mandarin Orchard er frábærlega staðsett við Orchard-verslunarstrætið í Singapúr. Mandarin-verslunarmiðstöðin er sambyggð hótelinu, þar selja meira en hundrað þekktar verslanir vörur sínar og ótal veitingastaðir eru í nágrenninu. Hótelið hlaut viðurkenningu sem besta hótelið í Singapúr 2013/2014 og sem lúxushótel árið 2012. Stutt er í jarðlestarstöðvar og aðrar almenningssamgöngur sem flytja þig hér um bil hvert á land sem er. 

 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun