fbpx Pension Nordstern, Mayrhofen | Vita

Pension Nordstern - Mayrhofen
3 stars

Einfalt þriggja stjörnu hótel staðsett á góðum stað í Mayrhofen við Zillertal. Gististaðurinn hét áður Garni Strass . Í næsta nágrenni eru veitingastaðir, barir og verslanir.  Stutt frá er skíðakláfurinn Penken.

Hótelið er komið til ára sinna og er einfalt í sniðum, en þar má finna móttöku, veitingastað og bar. Morgunverður er innifalinn og er hann er reiddur fram af hlaðborði. Nettenging er á staðnum bæði inn á herbergjum og á sameiginlegum svæðum.

Herbergin eru látlaus með einföldum innréttingum. Öll eru þau með sjónvarpi, öryggishólfi, svölum og fullbúnu baðherbergi.

Þetta er einfaldur en hagkvæmur kostur á góðum stað nálægt skíðalyftum, en skíðasvæðið býður upp á 142 km. af skíðabrautum. Brekkur bæði fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna

Sjá nánar um Mayrhofen og skíðasvæðið  við Mayrhofen og Zillertal

Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITA

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Innsbruck: 67,7 km
  • Veitingastaðir: Rétt hjá
  • Frá skíðalyftu: Rétt hjá

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun