fbpx Tui Blue, Fieberbrunn | Vita

Tui Blue - Fieberbrunn
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu hótel staðsett í útjaðri skíðabæjarins Fieberbrunn við Kitzbühel alpanna eða í 1,4 km. fjarlægð frá bænum. Allt um kring er stókostlegt útsýni og möguleikar á meira en 330 km af skíðabrautum fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.

Hótelið er staðsett alveg við skíðakláfinn Doischberg eða í 100 metra fjarlægð. Þaðan er hægt að komast á einfaldan hátt á öll helstu skíðasvæðin í næsta nágrenni sem eru  Saalbach-Hinterglemm-Leogang-Fieberbrunn.  Skíðasvæði  Kitzbüel er einnig í stuttri akstursfjarlægð, samanlagt eru þetta meira en 2750 km sem hægt er að skíða.

Á hótelinu er allt til alls eða móttaka, bar, setustofa og veitingarstaður. Þarna er einnig góð heilsulind þar sem  m.a. er gufubað, líkamsræktaraðstaða og innisundlaug. Upphituð skíðageymsla er á hótelinu þar sem hægt er að láta þurrka skíðaskónna.

Hálft fæði er innifalið og er morgunmatur reiddur fram að hlaðborði. Áhersla er lögð á týrólska og austurríska matargerð á kvöldin þar sem notuð eru úrvals hráefni.

Öll herbergi eru með sjónvarpi, öryggishólfi, svölum, minibar og fullbúnu baðherbergi með hárþurrku, baðsloppi, inniskóm og helstu snyrtivörum. Tvíbýli Duo er með útsýni upp til fjalla. Tvíbýli Plus eru stærri og rúma allt að 3 einstaklinga þau geta verið með útsýni til fjalla eða yfir hótelgarðinn.

Sjá nánar um skíðasvæðið hér

Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITA

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Innsbruck: 111 km.
  • Frá flugvelli: Salzburg: 72,4 km.
  • Frá skíðalyftu: 100 m.

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun