fbpx Tui Blue, Montafon | Vita

Tui Blue, Montafon
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Tui Blue er fjögurra stjörnu hótel staðsett í útjarði bæjarins Schuns-Tschagguns í Austurríki en þaðan er stutt að fara með skíðarútu eða bíl á skíðasvæðið Silvretta Montafon sem er sannkölluð paradís með um 295 km. af skíðabrautum. 

Á hótelinu er góð aðstaða eins og móttaka, veitingastaður, bar, bílastæði og upphituð skíðageymsla. Einnig er á hótelinu heilsulind þar sem m.a. má finna sauna og líkamsræktaraðstöðu.

Hálft fæði er innifalið og er morgunmatur reiddur fram af hlaðborði og kvöldverður með áherslu á austurríska matargerð. 

Herbergin eru með útsýni til fjalla og eru nútímalega hönnuð.  Öll eru þau með sjónvarpi, nettengingu, öryggishólfi og fullbúnu baðherbergi með hárþurrku og helstu snyrtivörum. Í móttöku er hægt að fá bæði baðslopp og inniskó.

Sjá nánar um skíðasvæðið Silvretta Montafon

Ath. Skíðalyftur eru ekki í göngufjarlægð heldur þarf að taka skíðarútu eða bíl. Ferðin tekur aðeins nokkrar mínútur og er vegalengd um 1,5 km.

Ekki er í boði akstur til og frá flugvelli á vegum Icelandair VITA

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Innsbruck: 143 km
  • Frá miðbæ: Schuns-Tschaggun: 1 km.
  • Frá skíðalyftu: 1,5-2 km

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun