fbpx Urban Dream Granada | Vita

Urban Dream Granada
4 stars

Vefsíða hótels

Fallegt og nútímalegt hótel á frábærum stað í miðbænum. Nokkurra mínútna gangur að gamla miðbænum, dómkirkjunni og öðrum kennileitum. Skemmtileg kaffihús og veitingastaðir í götunum í kring og almenningssamgöngur rétt við hótelið.

Í hótelinu eru 103 björt herbergi, ætluð einum upp í þrjá einstaklinga, og svítur sem rúma allt að fjóra. Innréttingar eru nútímalegar og stílhreinar, áherslulitur er blár og viður og parkett á gólfum er í millibrúnum lit. Loftkæling og upphitun, sími, flatskjársjónvarp, öryggishólf, lítill ísskápur og aðstaða til að laga te og kaffi er alls staðar. Á baðherbergi er baðker með sturtu, hárþurrka og baðvörur. 
Ókeypis háhraðanettenging er jafnt á herbergjum sem sameiginlegum rýmum. 

Morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum er í veitingasal. Þar er einnig boðið upp á kvöldverðarhlaðborð þar sem hægt er að fylgjast með kokkunum að störfum. Þeir sem vilja velja sína rétti af matseðli hafa um nóg að velja á Gastro Lounge, þar sem valið stendur um tapas og aðra spænska og alþjóðlega sælkerarétti í hádeginu og á kvöldin auk þess sem þar er tilvalið að setjast niður til að njóta ljúfra drykkja. 

Heilsulind er í hótelinu með nuddpotti, gufubaði, tyrknesku baði og líkamsræktaraðstöðu þar sem þjónusta einkaþjálfara er í boði. Einnig er boðið upp á margs konar nudd- og snyrtimeðferðir. 
Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er bíla- og hjólaleiga auk þess sem starfsfólk aðstoðar við miðakaup og veitir leiðbeiningar um áhugaverðar skoðunarferðir. Í móttökunni er einnig þvotta- og þurrhreinsi- og strauþjónusta.

Staðsetning Urban Dream er frábær, í 10 mínútna göngufæri við dómkirkjuna og gamla bæinn. Heilsulindin sér til þess að þeir sem vilja slökun og dekur geta notið þess án þess að fara út úr húsi auk þess sem úrvals veitingastaðir eru á hótelinu. Einnig er fjöldi  veitingastaða og verslana í götunum og kring og almenningssamgöngur eru rétt við hótelið. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Nokkurra min gangur að gamla miðbæ
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun