fbpx V Hotel Dubai / Sheraton Corniche Abu Dhabi | Vita

V Hotel Dubai / Sheraton Corniche Abu Dhabi
5 stars

4 nætur í Dubai á V hotel Curio Collection sem er með fallegt útsýni yfir Dubai Water Canal og endurspeglar hönnunin anda borgarinnar.

Það er vel staðsett og átta kílómetrum frá miðbænum. Burj Khalifa og Dubai Mall eru í 10 mínútna fjarlægð og það eru strendur innan 10 km. Hótelið býður upp á 5 stjörnu lúxus og er með 356 herbergi og aðstaðan öll hin besta, eins og útisundlaug, barnasundlaug, líkamsræktarstöð, tveir veitingarstaðir, tveir barir og tveggja hæða glæsilegur  næturklúbbur með útsýni yfir borgina.

Herbergin eru útbúin nútímaþægindum og eru öll með sjónvarpi, síma, loftkælingu, te- og kaffiaðstöðu, öryggishólfi, hárþurrku og minibar svo eitthvað sé nefnt . Hótelgestir fá einnig baðslopp, inniskó og baðstrandarhandklæði á meðan dvöl stendur.
Þetta er hótel sem kemur á óvart og gleður með einstaka, áhugaverða og sjaldgæfa upplifun

Heimasíða hótelsins

5 nætur í Abu Dhabi á hótel Sheraton Corniche sem er staðsett í hjarta borgarinnar og eru helstu verslunarhverfin í göngufæri.  

Þetta 4 stjörnu hótel hefur 272 herbergi og er tilvalið fyrir öll tilefni. Hægt að slaka á við einkaströndina sem tilheyrir hótelinu, við sandlónið, eða við sundlaugarnar. Heimsklassa veitingarstaðir, barir, líkamsrækt og heilsulind eru á hótelinu.  Herbergin eru vel búin nútímaþægindum eins og sjónvarpi, síma, öryggishólfi, litlum ísskáp, te eða kaffivél og hárþurrku.  Þráðlaust internet er á staðnum og boðið er upp á herbergisþjónustu. Skemmtilegur kostur en hótelið er frábærlega staðsett í Abu Dhabi. 

Heimasíða hótelsins

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt á V hotel Curio Collection og 5 dirhams á mann á nótt á Sheraton Corniche í Abu Dhabi. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur til Dubai
  • Flugvöllur: 2,5 klst. akstur frá Abu Dhabi

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun