Astoria, Las Palmas
Vefsíða hótels

Á hótelinu eru 274 herbergi búin helstu þægindum eins og ókeypis þráðlausu netsambandi, sjónvarpi, hárþurrku, loftkælingu og góðu skápaplássi auk öryggishólfs sem er til afnota gegn vægu gjaldi.
Uppi á þaki er upphituð sundlaug og verönd með sólbekkjum og líkamsræktaraðstaða og sána er á hótelinu. Afnot af öllu þessu eru innifalin í gistiverðinu.
Hótelið státar af eigin veitingastað þar sem hægt er að fá morgunmat, hádegismat og kvöldmat og hægt að velja um morgunverð eða hálft fæði.
Eins og á öðrum góðum hótelum er bar á Astoria. Móttakan er opin allan sólarhringinn og þjónustu eins og gjaldeyrisskipti, aðstoð við miða- og ferðakaup, ferðatöskugeymslu og þvottaþjónustu er að finna á hótelinu.
Hótel Astoria er miðsvæðis í borginni og er stutt á ströndina. Veitingastaðir, verslanir og söfn eru allt um kring.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 24 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Já
- Strönd: 100 m
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
Fæði
- Hálft fæði
- Morgunverður