Sveinn Sveinsson
Fararstjóri
Sveinn Sveinsson er mikill skíðamaður og hefur margoft komið til Madonna sem er í dag hans uppáhalds skíðabær. Hann þekkir því svæðið vel og allt það sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Sveinn er framreiðslumeistari að mennt og hefur starfað sem fararstjóri hjá VITA Golf undanfarin ár.
Hann er fæddur 1944, menntaður framreiðslumeistari og hefur víðtæka reynslu af veislu- og viðburðarrekstri. Hann starfaði m.a. sem veitingastjóri Bláa Lónsins í 10 ár.
Knattspyrna, skíði og golf hafa ávalt átt stóran þátt í lífi Sveins en hann hefur verið virkur í íþróttastarfi alla sína tíð. Meðal annars má nefna að hann var bæði í stjórn Knattspyrnufélagsins Fram og í skíðadeild Fram þar sem starfsemin fór fram í Eldborgargili í Bláfjöllum. Sveinn var einnig í stjórn KSÍ í 14 ár og í stjórn Landssamtaka eldri kylfinga þar sem hann var fararstjóri í ferðum á þeirra vegum.
Sveinn hefur alltaf haft mikinn áhuga á skíðum og farið í margar skíðaferðir til Austurríkis og Ítalíu með fjölskyldu og vinum. Síðastliðin ár hefur skíðasvæðið Madonna de Campiglio verið uppáhaldsstaðurinn hans. Að hans mati býður Madonna uppá allt það sem gott skíðasvæði þarf að hafa eins og flottar brekkur, gómsætan mat og dásamlegt umhverfi.
Undanfarin ár hefur Sveinn starfað sem fararstjóri á vegum VITA Golf bæði á Spáni og í Portúgal og hefur hann því góða reynslu af fararstjórn. Sveinn er kvæntur Margréti Nielsen og eiga þau 3 dætur sem allar stunda skíði.