HG Cristian Sur, Los Cristianos
Vefsíða hótels

Einfalt og rólegt íbúðahótel á góðum stað í Los Cristianos - stutt í verslanir, veitingastaði, bari og ströndina. Hótelið er staðsett beint á móti HG Tenerife Sur. Frábær staðsetning og gott verð.
Í boði eru rúmgóðar og bjartar íbúðir, eins eða tveggja svefnherbergja. Í þeim öllum er sjónvarp, sími, öryggishólf, opnanlegir gluggar og svalir. Á baðherbergi er baðkar og sturta, og hægt er að óska eftir hárþurrku og straujárni og strauborði. Í eldhúskrók er helluborð, ofn, ísskápur, brauðrist og hraðsuðuketill. Þráðlaust internet á sameiginlegum svæðum gegn gjaldi.
Íbúðir eru þrifnar 5 sinnum í viku og skipt um handklæði 2svar í viku. Skipt er á rúmum 1 sinni í viku.
Athugið að tveggja herbergja íbúðirnar eru á tveimur hæðum - á efri hæð er opið herbergi, baðherbergi og aðrar svalir.
Garðurinn er einstaklega fallegur og vel gróinn. Þar eru tvær laugar, önnur þeirra upphituð og barnalaug að auki. Á sundlaugarbarnum er frítt þráðlaust internet. Einnig er á hótelinu verslun og þvottahús.
Á veitingastað hótelsins er hægt að fá morgun-, hádegis- og kvöldverð, en á hótelinu er einnig kaffihús og matvöruverslun. Morgunverður eða hálft fæði í boði - gengið er frá því beint við hótelið.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 10 km
- Veitingastaðir: Við hótelið
Aðstaða
- Sundlaug
- Bar
- Gestamóttaka: Opin frá kl.8:00 - 24:00
- Nettenging: Já gegn gjaldi, í tölvuherbergi og þráðlaust net við sundlaugarbar
- Íbúðir: Íbúðir með einu og tveimur svefnherbergjum. Tveggja herbergja íbúðir eru á tveimur hæðum.
Vistarverur
- Sjónvarp
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Öryggishólf: Já, 2,25 EUR á dag eða 15,75 EUR fyrir vikuna
Fæði
- Hálft fæði
- Án fæðis