Radiance of the Seas
Vefsíða hótels

Glæsilegt farþegaskip, sem var hleypt af stokkunum 10. Mars 2001 og var allt nýlega endurnýjað. Norðmenn gera skipið út, en það er 90 þúsund lestir og tekur alls 2.502 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir, veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar.
Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi (með flatskjá,) ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.
Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og gjarnan lifandi tónlist. Heilsulindin býður gegn gjaldi ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir.
Aðal veitingasalurinn er á tveimur hæðum með svölum og glæsilegur í allar staði. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína. Aðrir veitingastaðir eru Chops Grill, sem er ekta amerískur „Diner „ með úrvals hamborgurum, frönskum, laukahringjum og öðru góðgæti. Sérrétta veitingastaðurinn Portofino er með ítölsku þema. Á þeim veitingastað þarf að panta borð og greiða aukagjald, sem er 25 til 30 dollarar á mann. Auk margra annara veitingastaða.
Windjammer er sjálfsafgreiðslu veitingastaður og afar vinsæll fyrir morgun- og hádegisverð. Þar má fá bæði salöt, létta rétti, kjöt, fisk og pasta og að sjálfsögðu er nóg af gómsætum eftirréttum.
Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll. Hægt er að fá eitthvað að borða og drekka nánast allan sólarhringinn. Allan daginn eru veitingastaðirnir opnir og hefst með morgunverði, hádegisverði, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverður . Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.
Eftir kvöldverðinn, sem er tvískiptur ganga gestir í leikhúsið og njóta þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur. Fátt jafnast á við litríkar sýningar snillinganna sem þeysa um skautasvellið við dynjandi tónlist.
Fjarlægðir
- Veitingastaðir: Um borð
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Herbergi: klefar með svölum eru í verðflokki D1 og E2
Vistarverur
- Hárþurrka
- Verönd/svalir
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Verönd/svalir: Í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið
Fæði
- Fullt fæði