fbpx Avani Avenida Liberdade | Vita

Avani Avenida Liberdade
4 stars

Vefsíða hótels

Avani Avenida Liberdade er gott fjögurra stjörnu hótel á góðum stað í Lissabon. Kaffíhús og verslanir eru allt í kring. Á hótelinu er veitingastaður og bar þar sem hægt er að borða góðan mat eða fá sér drykk. Einnig er heilsulind á systur hóteli Avani, Tivoli Avenida Liberdade hotel, þar sem gestir geta slakað á og í boði eru nudd og aðrar meðferðir. Lítil líkamsræktaraðstaða er á hótelinu sem stendur gestum til boða.

Herbergin eru 119 talsins. Þau eru öll með sjónvarpi, minibar og kaffiastöðu. Hægt er að fá tvíbýli með tveimur rúmum eða hjónarúmi. Baðherbergin eru ýmist með sturtu eða baðkari, hárþurrku og snyrtivörum.

Aðstaða

  • Lyfta
  • Líkamsrækt
  • Veitingastaður
  • Bar

Vistarverur

  • Baðvörur
  • Te- eða kaffiaðstaða
  • Herbergi
  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp

Fæði

  • Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun