fbpx Independence of the Seas | Vita

Independance of the Seas
 stars

Vefsíða hótels

Independence of the Seas er eitt af stóru skipunum í flotanum og tilheyrir Freedom klassanum. Independence er 154,400 tonn og um 339 metra langt. Skipið var smíðað í Turku í Finnlandi 2008 og síðan algerlega endurnýjað 2018. Á skipinu er boðið upp á endalausa möguleika fyrir alla aldurshópa, þar er einnig sérstakt vatnasvæði fyrir lítil börn, klettaklifurveggur, trampólín, Escape Room, vatnsrennibrautir, körfubolta og fótboltavöll að ógleymdu FlowRider sem er brimbrettabraut. Á skipinu er göngugata „Royal Promenade“ þar sem iðar allt af lífi, kaffihús, verslanir og veitingastaðir. Í leikhúsinu er boðið upp á Broadway sýningar. Skautasvellið er á sínum stað þar sem gestir geta reynt sig á skautum eða farið á ótrúlega skautasýningu. Á hverju kvöldi er boðið upp á þriggja rétta máltíð í aðal veitingastaðnum sem er upp á þrjár hæðir, auk þess sem eru nokkrir sérveitingastaðir auk bara og skemmtistaða.  Á sundlaugardekkinu eru 3 sundlaugar, 5 heitir pottar þar af tveir pottar sem koma í boga út fyrir skipið, ævintýralegt barnasundsvæði og rólegt fullorðinssvæði „ solarium“Á sport svæðinu er körfuboltavöllur, minigolf, klifurveggur og brimbrettalaug ( flow rider). Fullkomin líkamsræktarstöð sem býður upp á jóga og ýmsa aðra tíma. Snyrtistofa (Spa) með mikið af alls konar meðferðum. Independence of the Seas rúmar allt að 4560 farþega og er með 2350 manna áhöfn.  

Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Sundlaugabar
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Lín og handklæðaskipti
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Þráðlaust net

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun